Strákarnir okkar unnu frábæran sigur 33-26 á GróttuKR á Ásvöllum í dag.
Það var jafnt á öllum tölum framan af og skorti töluvert á einbeytingu hjá okkar mönnum. Það var ekki fyrr en rétt undir lok fyrri hálfleiks að þeir náðu 2ja og 3ja marka forystu, 10-9, 13-10 og í hálfleik var staðan 13-11.
Strax í byrjun seinni hálfleiks var allt annað að sjá strákana, þeir settu í gírinn, tóku völdin og náðu góðu forskoti 19-12. Þetta forskot létu þeir ekki af hendi og sigruðu glæsilega 33-26.
Markahæstur var Andri Stefan með 10 mörk og átti hann frábæran leik.