Haukar-Gorenje Meistaradeildin

Karlalið Hauka mætir slóvenska liðinu RK Gorenje frá Velenje laugardaginn 22. október kl. 16:00 á Ásvöllum í C-riðli Meistaradeildar Evrópu. Slóvenska liðið hefur á að skipa fjölmörgum landsliðsmönnum og Daninn Lars Walther er þjálfari en hann er íslenskum handknattleiksunnendum vel kunnur eftir að hafa spilað fyrir KA fyrir nokkrum árum. Haukarnir unnu síðasta leik sinn í riðlinum gegn ítalska liðinu Meran á meðan að Slóvenarnir töpuðu á heimavelli gegn Århus GF.

Dómarar leiksins koma frá Spáni en EHF eftirlitsmaðurinn er Íslandsvinurinn Krister Broman frá Svíþjóð. Leiknum verður bæði sjónvarpað og útvarpað til Slóveníu. Haukar vonast eftir kraftmiklum stuðningi allra unnenda íslensks handknattleiks á Ásvöllum á laugardaginn.

Frekari upplýsingar veita:
Þorgeir Haraldsson, 894-6146
formaður handknattleiksdeilar Hauka

Þorvarður Tjörvi Ólafsson, 822-2867
fulltrúi í Evrópunefnd Hauka