Haukar-FH mfl.karla

Strákarnir okkar unnu auðveldan sigur 31-21 í Hafnarfjarðarslag á Ásvöllum í kvöld.
FH skoraði fyrsta markið en Haukar voru fljótir að jafna og skiptust liðin á að hafa forystu í stöðuna 6-6. Þá tóku okkar menn völdin og náðu afgerandi forskoti fyrir leikhlé 16-8.
Í seinni hálfleik héldu Haukar takinu og juku forskotið, staðan var 25-12 áður en síðari hálfleikur var hálfnaður. Aldrei var spurning hvoru megin sigurinn lent og nánast formsatriði að klára leikinn.

Frábær sigur hjá strákunum okkar .

Haukar-FH mfl.karla

Strákarnir okkar léku við FH í kvöld og töpuðu leiknum með einu marki, lokatölur 28-29.
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn, liðin skiptust á að hafa 1-2ja marka forystu en í hálfleik var 11-13 fyrir FH. Í síðari hálfleik náðu gestirnir mest 4ra marka forystu en Haukar jöfnuðu rétt fyrir leikslok 27-27. Það dugði ekki til og stigin tvö töpuðust.

Leikurinn var skelfilega illa leikinn af okkar mönnum, þeir mættu engan veginn tilbúnir í slaginn. Kannski að ferðaþreytan hafi setið eitthvað í þeim og/eða hugurinn kominn til Svíþjóðar. Hver veit, en FH-ingar voru sælir með sigurinn, enda ekki unnið Hauka síðan 1997 eða 98.