Stelpurnar okkar töpuðu í kvöld fyrir FH 19-28 og því miður er þetta ekki aprílgabb.
Þær áttu ansi dapran dag, sérstaklega í sókninni þar sem ekkert gekk upp. Leikurinn var jafn í byrjun, Haukar gerðu fyrstu tvö mörkin og síðan var jafnt í 5-5 en þá hrökk allt í baklás og staðan orðin 6-11 og í hálfleik var 8-14. Seinni hálfleikinn byrjuðu stelpurnar okkar ágætlega og skoruðu fyrstu þrjú mörkin og breyttu stöðunni í 11-14 og áttu góða möguleika að spila sig inní leikinn aftur. En það gekk ekki eftir, allan kraft og baráttu vantaði og slæmi kaflinn varð alveg skelfilegur. Staðan breyttist úr12-15 í 14-19 og síðan 14-24.
Þrátt fyrir slæmt tap er engin ástæða til að hengja haus. Þetta var bara fyrsti leikurinn og við eru þess fullviss að stelpurnar okkar mæta brjálaðar til leiks í krikann á sunnudag. Við mætum og styðjum Haukastelpurnar okkar til sigurs.
Áfram Haukar.