Haukar – FH 0-1

Meistaraflokkur karla tók á móti nágrönnunum í FH í æfingaleik í Fífunni um sunnudagskvöldið. Leiknir voru þrír 35 mínútna hálfleikar og lauk leiknum með 0-1 sigri FH.

Það var ekki ýkja margt sem gladdi augu þeirra þó nokkuð margra áhorfenda sem lögðu leið sína í Fífunan þetta kvöld þar sem hvorugt lið sýndi neina sérstaka sóknartilburði. Einkenndist leikurinn mest af vel skipulagðri vörn Hauka gegn hægfara og hugmyndasnauðum sóknarleik FH. Sóknarleikur Haukamanna var heldur ekki upp á marga fiska og því stóðu leikar 0-0 eftir tvo hálfleika. Að vísu skoraði Ómar Karl fyrir Hauka í 2. hálfleik en það mark var dæmt af vegna rangstöðu, sem mönnum fannst ýmist algjör vitleysa eða hárrétt – líklega eftir því hvaða lið viðkomandi studdi.

Í síðasta hálfleiknum var mikið um skiptingar, þar sem öllum leikmönnum var leyft að spreyta sig, og tókst FH-ingnum Tómasi Leifssyni að koma knettinum í mark Hauka.