Á föstudaginn fór fram fyrri leikur Hauka og Cornexi Alcoa frá Ungverjalandi. Leikurinn fór fram á Ásvöllum.
Haukastelpurnar léku vel í fyrri hálfleik. Leikurinn var jafn nánast allan fyrri hálfleikinn og skiptust á að vera yfir. Staðan í hálfleik var 15-16 Cornexi í vil.
Í síðari hálfleik byrjuðu stelpurnar okkar illa. Fyrstu 10 mínúturnar skoruðu okkar stelpur ekki mark og Cornexi jók muninn. Cornexi var fljótlega komið í 5 marka forskot. Stelpurnar okkar spýttu í lófana og náðu að minnka muninn og jafna. En þá kom aftur slæmur kafli og Cornexi stelpur náðu sigri 31-26.
Síðari leikurinn fer fram í dag og hefst klukkan 16:00. Stelpurnar okkar þurfa á stuðningi áhorfenda til að komast áfram. Þetta verður erfiður leikur og þurfa stelpurnra okkar að sigra með 6 marka mun.
Við minnum svo einnig á að í dag fara fram tveir aðrir leikir á Ásvöllum. Strákarnir taka á móti Akureyri í úrvalsdeildinni klukkan 18:00 og strákarnir í ungmennaliðinu taka á móti grönnum okkar úr FH klukkan 20:00 í 1.deildinni.
ÁFRAM HAUKAR!!