Þá er það orðið loksins ljóst að Haukar munu spila aftur í 1.deildinni á næsta tímabili, en það var ljóst eftir stórsigur gegn Sindra á heimavelli í gær 7-1.
Veðrið á Ásvöllum var ekki uppá marga fiska á meðan leikurinn stóð en Haukar spiluðu á köflum glimrandi knattspyrnu.
Byrjunarlið Hauka var þannig skipað;
Í Markinu var vinur okkar allra; Amir Mehica
Varnarlínan var þétt & sterk en mennirnir á bakvið hana voru þeir; Jónas Bjarnason, Davíð Ellertsson, Þórhallur Dan Jóhannsson og Óli Jón Kristinson
Miðjan átti gjörsamlega miðsvæðið á vellinum en það voru þeir; Hilmar Geir Eiðsson, Edilon Hreinsson, Kristján Ómar Björnsson og forsetinn Goran Lukic, en miðjumenn Sindra reyndu hvað þeir gátu að gera einhvað af viti en lítið gekk á móti þessum herforingjum okkar Haukamanna.
Sóknarlínan var svo skipuð af þeim Ómari Karli Sigurðssyni og Ásgeiri Ingólfssyni.
Leikurinn byrjaði fjörlega og tók það okkur einungis þrjár mínútur að skora fyrsta mark leiksins, en þar var að verki forsetinn sjálfur, Goran Lukic, eftir að markvörður Sindra hafi misst fyrirgjöf Kristjáns Ómars úr fangi sér og við héldum áfram og það var aðeins þrem mínútum síðar þegar komið var af ungstirninu Ásgeiri Ingólfssyni að skora eftir að Ásgeir hafi komist inní sendingu hjá varnarmanni Sindra.
Næsta mark okkar heimamanna kom ekki fyrr en á 17.mínútu þegar Ómar Karl Sigurðsson hafði sólað hvern manninn á fætur öðrum og lagði síðan boltann út á Ásgeir sem skoraði sitt annað mark í leiknum. Staðan orðin 3-0.
Það var síðan komið af gestunum frá Höfn í Hornafirði að skora, eftir hornspyrnu barst boltinn út í teig þar sem Björn Pálsson fékk boltann, lék á einn varnarmann Hauka og lagði síðan boltann í fjærhornið, nokkuð vel gert hjá Birni, en þá hef ég lokið allri minni sögu um Sindra í þessum leik og héld áfram að skirfa um mörk Hauka, en þau átti eftir að verða fleiri.
Í byrjun seinni hálfleiks slapp Ómar Karl Sigurðsson inn fyrir vörn Sindra, hann renndi síðan boltanum á Hilmar Geir sem potaði honum í markið, staðan orðin 4-1 þegar 48.mínútur voru liðnar af leiknum.
Fimm mínútum síðar var komið af Ásgeiri að skora sitt þriðja mark í leiknum, en eftir langasókn og virtist að boltinn ætlaði aldrei að komast framhjá varnarmúr Sindra barst boltinn á Ásgeir sem hitti boltann mjög vel og sláin inn, mark! 5-1.
Ómar Karl sem átti stórgóðan leik og algjör synd að hann hafi ekki skorað í leiknum átti skot í slá á 55.mínútu eftir fyrirgjöf frá Ásgeiri. Edilon Hreinsson var einnig nálægt því að skora á 56.mínútu þegar skot hans sem var þéttingsfast fór réttframhjá. Það var síðan komið að Goran að eiga næsta skot að marki Sindra en markvörður Sindra varði stórglæsilega. Ómar Karl slapp svo einn innfyrir og lék á markvörð Sindra og renndi síðan boltanum í átt að markinu en allt í einu kemur einn varnarmaður Sindra askvaðandi og nær að bjarga í horn, úr horninu stangaði síðan Gamli Óli boltann í netið. Staðan því orðin 6-1 og heimamenn enganveginn hættir, enda á leið í 1.deild. Síðasta mark leiksins kom síðan á 73.mínútu þegar Edilon Hreinsson lagði boltann undir markvörð Sindra eftir að hann hafi komist einn innfyrir.
En Haukar hættu ekki að sækja og átti Úlfar Hrafn Pálsson skot að marki Sindra en varnarmaður Sindra náði að verja glæsilega með hönd sinni, en ágætur dómari leiksins Sigurður Óli Þórleifsson ku ekki hafa séð atvikið, skrýtið það. Úlfar sem kom inná 70.mínútu hélt áfram að sækja og á 82.mínútu var hann í góðri stöðu til að skora sitt annað mark í sumar í deildinni, en skalli hans hátt yfir. Annar varamaður, Garðar Geirsson átti síðan síðasta færi leiksins en skot hans fór í stöng og svo útaf vellinum, en skotið gott samt sem áður.
Eftir leikinn er því orðið ljóst að Haukar munu spila í 1.deildinni aftur eftir stutt stopp í 2.deildinni. Næsti leikur Hauka er síðan á sunnudaginn á Selfossi kl.14;00 en Selfoss er enn í baráttu um að komast upp með Haukum, en þrjú lið fara upp. Við hvetjum því Haukafólk að fjölmenna á Selfoss en strákarnir eru staðráðnir í að klára deildina taplausir.
Haukar spila síðan síðasta leik sinni í deildinni á heimavelli laugardaginn 15.september kl. 14;00 hér á Ásvöllum gegn ÍR en þeir eru eins og Selfoss enn í baráttu um að komast upp.
Andri Marteinsson þjálfari Hauka var að vonum ánægður með sigurinn í gær Ég er mjög ánægður og það er frábært að vera búinn að ná markmiðinu þegar tveir leikir eru eftir. Við erum búnir að vera mjög þéttir í sumar. Ég myndi segja að okkar akkílesarhæll hafi verið að skora En svo sannarlega var það ekki að plaga þá í gær.
Þórhallur Dan Jóhannsson fyrirliði Hauka var frekar kátur í bragði eftir leikinn Þetta var frekar létt fannst mér og þeir voru ekkert mikið að sækja á okkur. Það hjálpaði okkur líka að við skoruðum þrjú mörk frekar snemma í leiknum, en það var kannski óþarfi að láta þá skora. Það er gaman þegar tvær umferðir eru eftir að það sé búið að tryggja þetta, en þá verður maður nú að setja sér ný markmið eftir helgi .. Sem verður auðvitað að sigra deildina.
Ásgeir Ingólfsson skoraði þrennu í leiknum í gær og hann var ánægður með leikinn í gær Þetta var frekar auðvelt hjá okkur í dag(gær). Ég er mjög ánægður með leikinn þrátt fyrir aðstæður, aðstæðurnar voru ekkert spes, en við reyndum bara að spila fótbolta og kláruðum bara leikinn. Aðspurður um það að vera kominn í 1.deild sagði Ásgeir Ég er mjög ánægður með það, það var auðvitað bara markmiðið okkar og nú klárum við bara mótið og vinnum Selfoss. Við erum ekkert hættir þótt að þetta sé komið, það kemur ekkert annað til boða. Við ætlum okkur að vinna deildina.
Viðtalið við Andra í heildsinni;
http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=51732
Viðtalið við Þórhall Dan í heildsinni;
http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=51731