Haukar öruggir áfram eftir sigur á Selfoss

Viðureign Hauka og Selfoss í Fífunni í dag var uppgjörið um það hvort liðið kæmist áfram í undanúrslit B-deildar Deildabikarkeppni KSÍ. Haukar unnu 2-1 í hörkuleik þar sem hvergi var slegið af í barningi og ákefð, sem varð til þess að hvorki fleiri né færri en 34 aukaspyrnur voru dæmdar í leiknum.

Haukar stilltu upp eftirfarandi liði:

Amir

Pétur – Daníel – Hermann – Davíð E.

Hilmar G. – Kristján – Hilmar T. – Birgir

Arnar – Hilmar E.

Í seinni hálfleik kom Andri inn fyrir Birgi sem fór meiddur af velli. Bjarki J. og Lárus komu síðan inn á undir síðasta korterið fyrir Arnar og Hilmar Geir. Óli Jón er enn frá vegna tognunar í læri, sem og Þorvaldur. Þá er Ómar Karl staddur erlendis. Amir Mehicca lék sinn fyrsta opinbera leik fyrir Hauka og óskum við honum til hamingju með það.

Selfyssingar mættu ákveðnir til leiks og ætluðu augljóslega að láta Haukana hafa vel fyrir hlutunum. Okkar mönnum tókst nokkuð brösuglega að finna taktinn í spilinu á meðan Selfyssingar voru ákveðnir í sínum skyndisóknum, sem byggðu mikið á löngum sendingum aftur fyrir vörn Hauka sem vel röskir og kraftmiklir sóknarmenn Selfoss eltu af eldmóði.

Þegar leið á fyrri hálfleik fóru Haukar að ná örlitlum undirtökum í leiknum, en fram að því hafði Selfoss sýnt að þeir voru skeinuhættir í sókninni og meðal annars spyrnt tveimur aukaspyrnum yfir mark Hauka af ákjósanlegum stöðum.

Fyrsta skot Hauka sem hitti markið kom úr aukaspyrnu rétt fyrir utan teig sem Kristján sneri fram hjá vegg andstæðinganna, en sem markvörður Selfoss náði að verja í horn. Selfoss gerði mikið út á föst leikatriði og flutti fram báða miðverði sína í hornum, aukaspyrnum og jafnvel innköstum. Þetta opnaði fyrir skyndiáhlaup Hauka, en eitt slíkt skilaði einmitt fyrsta marki leiksins á 37. mínútu leiksins. Eftir hornspyrnu Selfoss hreinsuðu Haukar frá, Hilmar E. tók við boltanum á miðjunni og tók mikinn sprett upp vinstri kantinn áður en hann renndi boltanum fyrir markið á Hilmar Geir sem plataði snyrtilega einmanna varnamann Selfoss og skilaði boltanum í þaknetið. Einungis 3 mínútum seinna komst Birgir í mjög gott færi eftir aðra skyndisókn, en var klaufi að bæta ekki við marki.

Í seinni hálfleik var allt áfram í járnum og eftir þokkalega byrjun Haukanna, með dauðafæri Arnars á 48. mínútu, fóru Selfyssingar að færa sig upp á skaftið og gerast öllu ágengari á vallarhelmingi Hauka, þó án þess að koma sér í teljandi marktækifæri. Á 54. mínútu fengu þeir þó mark á silfurfati þegar Daníel sendi misheppnaða sendingu ætlaðri Pétur sem sóknarmaður Selfoss komst auðveldlega inn í. Sá var ekkert að tvínóna við hlutina heldur þrumaði boltanum niðri í markhornið fjær – svo gott sem óverjandi fyrir Amir í markinu. Frábær afgreiðsla.

Selfyssingar efldust allir við markið, en sem fyrr áttu erfitt með að finna leið að marki Hauka. Í heildina átti Selfoss 8 marktilraunir og þar af voru 3 skot sem hittu mark Hauka. Sambærileg tölfræði Hauka voru 12 marktilraunir og þar af 6 skot sem hittu mark Selfoss.

Fimm mínútna kafli, þegar liðið hafði á seinni hálfleik, slökkti vonir Selfoss að mestu um að ná sigri á Haukum, sem var það eina sem hefði dugað þeim til sætis í undanúrslitunum. Á 75. mínútu skoraði Hilmar Trausti mark úr teignum eftir að hafa fengið allan tímann í heiminum til að senda boltann í netvinkilinn vinstra megin. Á 80. mínútu var síðan einn af sóknarmönnum Selfyssinga rekin af velli fyrir að hafa sparkað í einn Haukamann eftir að boltinn var á bak og burt.

Það sem eftir liði leiks gerðist fátt markvert og Haukar lönduðu góðum 2-1 sigri á Selfoss, sem augljóslega eru með prýðistgott lið og verða væntanlega í báráttunni í 2. deildinni í sumar.

Dómari leiksins leyfði Selfyssingum að spila „stórkallalegan“ fótbolta, þar sem leikmenn komust oft upp með grófari leik en venjulega er leyfður. Áherslan á kraft og hraða var þó ekki langt frá því að skila Selfoss góðum úrslitum í dag, þar sem leikstíll þeirra gerði Haukunum erfitt uppdráttar í allri uppbyggingu á samspili. Þegar hugsað er til baka yfir leikinn þá er í raun ótrúlegt að einungis tvö spjöld hafi litið dagsins ljós í leiknum: 1 gult og 1 rautt, bæði á Selfyssinga.

Næsti leikur Hauka, og jafnframt sá síðasti í riðlinum, er gegn Bolungarvík í Fífunni laugardaginn 23. apríl klukkan 14:00. Gera má ráð fyrir að einhverjir af leikmönnum Hauka verði hvíldir, þar sem efsta sætið í riðlinum er tryggt, og einhverjir af yngri leikmönnum liðsins fái að spreyta sig. Við hvetjum því alla til að mæta á laugardaginn og hvetja liðið til sigurs.