Haukar í Höllina

Handboltaveislan á Ásvöllum í gær var hreint frábær. Bæði liðin okkar tryggðu sér sæti í úrslitum SS-Bikarsins.
Stelpurnar unnu Gróttu 25-22 og strákarnir unnu Fram 30-27. Tveir glæsilegir sigrar og alveg meiri háttar að fara með bæði liðin í Höllina.

Takið frá laugardaginn 25. febrúar því þá verður sannkallaður Haukadagur í Höllinni:
Haukar – ÍBV mfl.kvenna
Haukar – Stjarnan mfl. karla