Haukar í Cupwinners Cup

Þrátt fyrir sex marka tap í Svíþjóð í dag náðum við þriðja sætinu sem stefnt var að, því Creteil tapaði fyrir Kiel í Frakklandi 31:29. Leikurinn í dag var ekki góður og margt sem má betur fara. Staðan í hálfleik var 19-16 og endaði leikurinn 38-32.

skv. heimasíðu Savehof(www.savehof.se) skoruðu okkar menn sem hér segir:
Halldór Ingólfsson 7, Þórir Ólafsson 7, Ásgeir Örn Hallgrímsson 5, Vignir Svavarsson 4, Andri Stefan Guðrúnarson 3, Freyr Brynjarsson 3, Jón Karl Björnsson 1, Gísli Jón Þórisson 1, Gunnar Ingi Jóhannsson 1