Haukar eru komnir áfram í 8-liða úrslit Subwaybikarsins eftir 74-80 sigur á KR-b í DHL-höllinni í gærkvöldi.
Haukar sem leika í 1. deild áttu í basli með b-lið KR sem leikur í 2. deild og var jafnræði með liðunum stóran hluta af leiknum.
Haukar náðu á milli 12 og 15 stiga forystu þegar leið á 4. leikhluta en KR-ingar náðu að minnka muninn undir lokin með síðustu stigum leiksins.
Þar með eru Haukar komnir áfram í 8-liða úrslit en þau verða leikin 11. og 12. janúar 2009.
Stigahæstur hjá Haukum var Sveinn Ómar Sveinsson með 22 stig og 9 fráköst og Kristinn Jónasson skoraði 20 stig og tók 13 fráköst.
Myndasafn úr leiknum er á Karfan.is og umfjöllun um leikinn á heimasíðu KR.
Mynd: Sveinn Ómar Sveinsson að skora 2 af 22 stigum sínum en varnarmenn KR koma engum vörnum við – stefan@haukar.is