Skákdeild Hauka stóð sig frábærlega í lokaumferð Íslandsmáot Taflfélaga sem að fram fór um síðustu helgi. Smaheldni og barátta Haukamanna var frábær um helgina og skilaði sínu.
A-sveit félagsins lenti í 3. sæti eftir hörkukeppni við Skákdeild Fjölnis. Haukamenn sýndu þar og sönnuðu að þeir eiga eitt besta skáklið landsins um þessar mundir.
B-sveitin stóð sig einnig vel og lenti í 3. sæti í annari deild.
C-sveitin varð síðan í 1-2 sæti í 4. deild, en úrslit liggja ekki alveg fyrir vegna frestaðra skáka, en samt er sveitin örugg með 1 eða 2 sæti og vann sér sæti í 3. deild að ári.
D-sveitn lenti í 9 sæti og E-sveitin sem að var skipuð að mestu ungum og upprennandi skákbörnum lenti í 26. sæti.
Haukar munu því eiga sveitir í öllum deildum á næsta ári.
2 brons og eitt silfur/gull, frábær árangur.
Margir skákmenn tóku þátt nú um helgina og sendir Skákdeild Hauka þeim öllum miklar þakkir fyrir þáttökuna.