Íslandsmóti Skákfélaga lauk nú um helgina þegar seinni hluti mótsins var haldinn í Rimaskóla.
A-sveit félagsins stóð sig með mikilli prýði og endaði í 3. sæti 1. deildar. Þar með er geirneglt að Haukamenn eigi eina af allra bestu skáksveitum landsins.
B-sveit félagsins lék í 2. deild þetta árið og var stefnan sett á það fyrir mótið að reyna að vera í toppnum, eygja von um að komast kannski upp í efstu deild. Sú var nú ekki raunin, en sveitin má einnig vel við una, og endaði í 3. sæti deildarinnar.
Aðrar sveitir Haukamanna tefldu síðan í 4. deild. Áður en seinni hlutinn hófst, höfðu fáir trú á c-sveitinni, nema þá kannski þeir sjálfir. ónefndur pistlahöfundur og ritstjóri reiknaði ekki með því að sveitin myndi vinna sig upp um deild. Annað kom þó á daginn, og er sveitin sem stendur í efsta sæti 4. deildarinnar. Nokkrar skákir eru víst frestaðar, og verða tefldar sem einnar mínútu skákir áður en deildó hefst næsta haust;)
En eins og var öskrað í Bonn árið 1986 af allra þjóða kvikindum, hljótum við að taka undir, 22 árum síðar og segja: „ÁFRAM HAUKAR“