Báðar sveitir Haukana stóðu sig með mikilli prýði á íslandsmóti unglingasveita um síðustu helgi.
Mótið var fyrir einstaklinga sem voru fædd ’89 og yngri og endaði A sveitin í 7-11 sæti með 14,5 vinninga eftir að hafa fengið allar erfiðustu sveitirnar. Aðeins einn vinningur í viðbót hefði gefið 4 sæti þannig að keppnin var mjög jöfn fyrir utan 3 efstu sveitirnar.
B sveitin, sem var mjög ung en uppistaðan í henni voru 10 og 11 ára krakkar, fékk 5,5 vinning og lenti í 18 sæti.
Best allra stóð 1. borðs maður Hauka Sverrir Þorgeirsson sig en hann varð í efsta sæti allra fyrsta borðs manna með 6 vinninga af 7 mögulegum en hann tapaði aðeins fyrir Svanberg Má Pálssyni sem kom næstur með 5.5 vinning.
Röð efstu sveita má sjá á www.skak.is.
Árangur Haukamanna varð eftirfarandi:
A sveit.
1. Sverrir Þorgeirsson 6 v af 7!!!!
2. Kristján 2 af 7.
3. Geir 3,5 af 7.
4. Herbert 3 af 7.
samtals 14,5. vinningar af 28 mögulegum.
Þess ber að geta að allir þessir strákar eru í 8-9 bekk.
B sveit Hauka.
1. Davíð Reginsson 0,5 af 6.
2. Hans Adolf Linnet 2 af 6.
3. Agnes Linnet 1 af 6.
4. Emil Stefánsson 1 af 5.
1.v. Steinþór Bragason 1 af 5.
samtals 5,5 vinningar.