Haukar – Þór 1-1

Í kvöld tóku okkar menn á móti Þór frá Akureyri og fór leikurinn fram við hinar fínustu aðstæður í blíðskaparveðri.
Haukar byrjuðu leikinn af krafti og voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik, í raun allt annað að sjá liðið miðað við síðasta leik.
Þessi góða byrjun skilaði sér meðal annars í tveimur dauðafærum sem Sævar Eyjólfsson fékk en náði því miður ekki að nýta…og nagar sig vafalaust í handabökin vegna þess.
Þegar u.þ.b. tíu mínútur voru til leikhlés náðu okkar menn þó forystunni og var þar að verki Goran sem skoraði með föstu og hnitmiðuðu skoti fyrir utan vítateig, skotið breytti reyndar um stefnu af varnarmanni gestanna, en gott mark engu síður. Staðan í hálfleik 1-0 og útlitið þokkalega bjart.
Í seinni hálfleik var svo eins og Haukarnir misstu dampinn, Þórsarar náði mun betri tökum á leiknum og voru skeinuhættir án þess þó að búa til sérstök færi. Innkoma Alexander Santos í lið gestanna hafði mikil áhrif á gang leiksins og sóknarleikur Þórsara varð töluvert beittari. Það kom þess vegna lítið á óvart er þeir jöfnuðu leikinn um stundarfjórðungi fyrir leikslok, eftir nokkuð þunga sókn.
Það sem eftir lifði leiks reyndu okkar menn að setja gestina undir meiri pressu en í raun skilaði það bara einu alvöru færi. Þar var á ferð Sævar Eyjólfs en hann missti boltann aðeins of langt frá sér og varnarmaður gestanna náði að verja skot hans úr þröngu færi.
Niðurstaðan 1-1 jafntefli, í heildina séð nokkuð sanngjörn úrslit þó svo að okkar menn hefðu vel getað hirt öll þrjú stigin.

Næsti leikur liðsins er á föstudaginn nk. þegar liðið sækir Aftureldingu heim í Visa bikarnum. Elstu menn muna vart hvenær síðast náðist sigur á þeim velli og því löngu kominn tími til að ná í einn sigur þar.