Haukar-ÍBV 8-liða úrslit

Strákarnir okkar sigruðu ÍBV í miklum markaleik á Ásvöllum í kvöld. Í hálfleik var staðan 21-19 og endaði leikurinn 41-39, já 80 mörk takk fyrir.
Það fór lítið fyrir vörn hjá okkar mönnum og nokkuð ljóst að í þeirra páskaeggjum var ekki málshátturinn “Gott er að spila vörn í handbolta”.

ÍBV skoraði fyrsta markið en Haukar jöfnuðu strax og var jafnt á öllum tölum í 12-12 en þá komust okkar menn í fyrsta skipti tvö mörk yfir 14-12 og náðu mest þriggja marka forystu. Í seinni hálfleik hélst þessi munur, 2 til 3 mörk þar til ÍBV jafnaði 24-24 og komust gestirnir yfir 26-27 og síðan í 26-29 og 28-31. Haukar jöfnuðu síðan 33-33 og var jafnt á næstu tölum í 36-36 en þá ná strákarnir okkar tveggja marka forystu 38-36 og síðan 40-37 og lokatölur 41-39.

Markahæstir voru Halldór með 9 mörk og Ásgeir Örn með 7 mörk.

Sóknin var í fínu lagi allan leikinn en vörnin var arfaslök, algjört gatasigti. En nú stoppa strákarnir okkar í götin og mæta tilbúnir til leiks í Eyjum á fimmtudag.