5 félagar í Skákdeild Hauka tóku þátt í MP móti Taflfélags Reykjavíkur.
Þetta voru þeir Þorvarður Fannar Ólafsson og Stefán Freyr Guðmundsson í B-flokki og Sveinn Arnarson, Ingi Tandri Traustason og Svanberg Már Pálsson í c flokki.
Þorvarður lenti í 4. sæti með 5 vinninga og Stefán í því 8. með 3 vininga.
Í c-flokki lenti Sveinn Arnarson í 5. sæti með 6 vinninga. Mjög góður árangur sem ætti að tryggja hann inn á næsta stigalista. Ingi Tandri fékk 5,5 vinninga og lenti í 6. sæti sem einnig er góður árangur. Svanberg fékk 5 vinninga og lenti í 12. sæti sem er gott hjá þessum mjög svo efnilega skákmanni.
Til hamingju strákar.