Þrír Haukamenn og einn verðandi Haukamaður ;o) eru með á Meistaramóti Hellis, sem nú stendur yfir. Sverrir Þorgeirsson og Stefán Freyr eru að gera mjög góða hluti og eru í 2-5.sæti með 4 vinninga að loknum 5 umferðum.
Frammistaða Sverris hefur vakið mikla athygli. Hann sigraði m.a. Íslandsmeistara kvenna, Guðlaugu Þorsteinsdóttur (2147) og hefur svo gert jafntefli við efsta mann mótsins, Omar Salama (2199) og Tómas Björnsson (2215). Sannarlega glæsileg frammistaða!
Stefán Freyr tapaði mjög óverðskuldað gegn Hrannari Baldurssyni eftir að hafa haft unnið tafl. Hann bætti þó úr því með því að leggja af velli Tómas Björnsson (2215) í gærkveldi og er þetta í annað skiptið í röð sem Stefán leggur Tomma í kappskák!
Geir Guðbrandsson er með 2 vinninga. Hann sigraði hinn bráðefnilega Dag Andra Friðgeirsson (1435) og Pál Snædal Andrason.
Að lokum tekur góðvinur okkar úr Hafnarfirði, Sigurbjörn Björnsson, þátt í mótinu. Sigurbjörn hefur náð vinningsstöðu í öllum 5 skákum sínum, en æfingaleysi hefur verið að hrjá hann og hefur hann misst niður einn og hálfan punkt. Hann á þó enn sjens á að vinna mótið, en þá þarf hann að vinna 2 síðustu skákir sínar og treysta á hagstæð úrslit. Skemmst er að minnast frábærrar frammistöðu Sigurbjörns á Politiken Cup í sumar, þar sem hann deildi 2-13.sætinu með mörgum stórmeisturum, þar á meðal Korchsnoi. Kannski eru andstæðingarnir í Hellismótinu bara ekki nógu sterkir til að Sigurbjörn nái að sýna sitt rétta andlit. :o)