Haukar áttu samtals 18.2% leikmanna A-landsliðs kvenna sem lauk leiknum á móti Póllandi á alþjóðlegu móti sem fer fram í Portúgal þessa dagana.
Eins og við sögðum frá í gær þá lék Sara Björk sinn annan A-landsleik þegar hún kom inn á í hálfleik í 2-0 sigri liðsins. Þá kom Pála Marie Einarsdóttir inn á í lok leiks og náði þar með sínum þriðja A-landsleik. Pála Marie er uppalin Haukakona og lék fjölda leikja með meistaraflokki kvenna og yngri landsliðunum áður en hún fór í útlegð til bræðrafélags Hauka, Vals. Pála Marie lék sína fyrstu A-landsliðsleiki fyrir um tveimur árum síðan en lenti þá í erfiðum meiðslum og hefur ekki fengið tækifæri aftur með liðinu fyrr en nú.
Í viðtali Sigurðs Ragnars, landsliðsþjálfara, við Fréttablaðið í morgun kemur fram að ungu stelpurnar sem komu inn á í hálfleik „þær Rakel Hönnudóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir áttu sinn þátt í að rífa upp leik íslenska liðsins í seinni hálfleik … Sara Björk og Rakel komu þá inn og stóðu sig mjög vel“
Þá segir Edda Garðarsdóttir, einn leikreyndasti leikmaður landsliðsins, á fotbolti.net að „Sara Björk átti frábæra innkomu og tuffaði óvart á sig, (nei ekki einu sinni, ÞRISVAR)“. Hvað „tuffaði á sig“ stendur nákvæmlega fyrir getur fréttaritari því miður ekki útskýrt en grunar að það hafi eitthvað með það að gera að Sara Björk hafi spilað af mikilli hörku enda lágu víst Pólverjar ótt og títt skælandi í grasinu eftir viðskipti við Íslendinga.
Næsti leikur liðsins verður á morgun þegar Ísland mætir Írlandi og vonandi verða bæði Sara og Pála aftur í eldlínunni. Á síðu fotbolti.net má skyggnast bakvið tjöldin þar sem landliðskonurnar halda dagbókarskrif um veru þeirra í Portúgal.
Hér sjást Pála Marie og Sara Björk hliðinni á henni.