Þetta var sannkallaður Haukadagur á Ásvöllum í gær. Að vinna tvo Deildarmeistaratitla á dag er toppurinn.
Það var frábært að vera með bæði liðin okkar í úrslitum um Deildarmeistaratitil á sama degi og sama stað og það á heimavelli. Enda var gleðin og ánægjan þvílík þegar báðir bikararnir voru okkar, að menn gátu vart hætt að fagna.
Stelpurnar okkar byrjuðu daginn og tóku þær á móti ÍBV. Haukar voru á toppi deildarinnar fyrir leikinn en urðu að sigra eða ná jafntefli til að vinna Deildarmeistaratitilinn. Þær mættu aldeils tilbúnar í leikinn og sást glöggt frá fyrstu mínútu að þær ætluðu sér ekkert nema sigur. Þær tóku öll völd á vellinum og sá ÍBV aldrei til sólar og unnu Haukar 35-21. Þær náðu strax góðum tökum á leiknum 7-2, 14-6 og í hálfleik var staðan 16-8. Í byrjun seinni hálfleiks var ekkert slakað á, heldur keyrt á fullu og tryggt að sigurinn væri aldrei í hættu. Stelpurnar okkar áttu mjög góðan leik, liðsheildin var frábær. Sóknin gekk vel og vörnin var fantagóð. Það small allt og þær uppskáru glæsilegan sigur og sjálfan DEILDARMEISTARATITILINN.
Næst var komið að strákunum okkar og léku þeir við ÍR. Fyrir leikinn voru þeir líkt og stelpurnar okkar, á toppi deildarinn og urðu að sigra eða ná jafntefli til að landa Deildarmeistaratitlinum.
Fyrri hálfleikur gekk hálfbrösuglega hjá okkar mönnum. ÍR skoraði fyrsta markið en Haukar jöfnuðu strax og náðu forystu 3-1 og 7-4. Það forskot dugði lítið því ÍR jafnaði 9-9 og komst yfir 10-13 og í hálfleik 14-17. Leikhléið fór vel í okkar menn, þeir komu mun einbeittari til leiks og náðu upp baráttu í vörninn og þá kom markvarslan. Þeir jöfnuðu fljótt 17-17 og var leikurinn í járnum næstu mínútur. Þá kom góður Hauka-kafli og 6 marka forskot 28-22. En leikurinn var ekki búinn og ÍR reyndi hvað þeir gátu en tókst ekki að komast nær (sem betur fer) og endaði leikurinn 31-29. Glæsilegur sigur og að launum fengu strákarnir DEILDARMEISTARATITILINN
Heimasíðan óskar mfl.karla og mfl.kvenna innilega til hamingju með titlana og eins öllum Haukum. Þetta var frábær dagur.
ÁFRAM HAUKAR.