Handboltabúðir Hauka að Ásvöllum
Vikuna 17.-20.mars
- Haldið 17.-20.mars að Ásvöllum. Dagskrá frá 09-12 alla dagana með nestispásu.
- Mikilvægt að allir mæti með nesti með sér alla dagana.
- Fyrir stelpur og stráka í 1.-8.bekk. (8.-5.flokkur karla og kvenna)
- Skipt verður í hópa eftir aldri.
- Boðið er upp á barnagæslu frá kl 08:00 alla dagana.
- Verð per einstakling er 5000,-kr. Aðeins er borgað fyrir 2 fyrstu systkynin önnur fá frítt.
- Hægt að greiða á staðnum eða millifæra á reikning 1101-26-8307. kt. 140772-5349. Skrifa nafn barns í tilvísun. Það þarf síðan að framvísa greiðslukvittun úr heimabanka.
- Skráning fer fram með því að senda upplýsingar á netfangið gisli12@gmail.com með nafni barns og kennitölu ásamt gsm númeri foreldris.
- Umsjónarmaður hanboltabúðanna verður Gísli Rúnar Guðmundsson, íþróttafræðingur, markvarðaþjálfari og leikmaður mfl. Hauka.
- Leiðbeinendur í handboltabúðunum verða leikmenn Hauka í mfl karla og kvenna.
Allir sem skrá sig í hanboltabúðirnar fá..
- Frímiða á leik Hauka og Vals í N1-deild karla sem fram fer sunnudaginn 30. mars.
- Þátttökurétt í vítakeppni á markverði meistarafloks þar sem RISA-Páskaegg er í verðlaun.
- Glæsilegan vatnsbrúsa frá Fitness Sport
- Plakat af meistaraflokki karla og kvenna
- Viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna
- Pylsuveisla seinasta daginn.
NÝJAR ÁHERSLUR
- Vilt þú kunna að finta eins og Beggi, Freyr og Ramune
- Kannt þú skotfintuna hans Andra Stefans
- Vilt þú læra hornaskot af Hönnu Stefáns og Ernu eða snúningana hans Jón Karls
- Hvernig væri að læra varnarbrellurnar hjá Gunnari Bergi, Hörpu Melsted og Arnari Péturssyni
- Markverðir meistaraflokkanna leiðbeina ungum markvörðum
Dagskrá handboltabúðanna
Mánudagur 17.mars |
Þriðjudagur 18.mars |
Miðvikudagur 19.mars |
Fimmtudagur 20.mars |
08:00-09:00 Gæsla 09:00-10:15 Krefjandi boltaæfingar 10:15-10:45 Nesti 10:45-12:00 Fljúgandi handbolti |
08:00-09:00 Gæsla 09:00-10:15 Skotþjálfun-Ýmis afbrigði 10:15-10:45 Nesti 10:45-12:00 Eldknöttur |
08:00-09:00 Gæsla 09:00-10:15 Ýmsar þrautir og æfingar. 10:15-10:45 Nesti 10:45-12:00 EM á Ásvöllum |
08:00-09:00 Gæsla 09:00-10:15 Gabbhreyfingar og Markvarðaþjálfun 10:15-10:45 Nesti 10:45-12:00 Vítakeppnin mikla og Pylsuveisla |