Stelpurnar okkar unnu frábæran sigur á GróttuKR í undanúrslitum SS-bikarsins í kvöld. Þetta var ekta bikarleikur, hann var æsispennandi, það var hraði, spenna og dramatík. Leikurinn var ágætlega spilaður þrátt fyrir mikla spennu. Í hálfleik var jafnt 14-14 og rétt fyrir leikslok náði GróttaKR að jafna 28-28 og framlenging framundan. Stelpurnar okkar byrjuðu betur í framlengingunni og náðu forystu og var staðan 29-31 í hálfleik framlengingar. Í seinni hálfleik framlengingar héldu stelpurnar okkar haus og sigruðu 32-33.
Glæsileg frammistaða og frábært hjá stelpunum að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum. Mótherjarnir í Bikarúrslitum verða ÍBV og fer leikurinn fram í Höllinni laugardaginn 28. febrúar.