Stelpurnar nældu sér í tvö stig er þær unnu GróttuKR 24-25 á Nesinu í gær. Ramune var markahæst með 7 mörk.
Stelpurnar nældu sér í tvö stig er þær unnu GróttuKR 24-25 á Nesinu í gær. Ramune var markahæst með 7 mörk.
Minnum á leikinn hjá stelpunum kl. 17.00 við GróttuKR á Seltjarnarnesi.
Það var frekar dapur leikurinn hjá stelpunum á Nesinu í kvöld er þær töpuðu 26-25 fyrir GróttuKR. Leikurinn var jafn til að byrja með, liðin skiptust á að skora, þar til Haukastelpur sigu aðeins framúr og var staðan 11-15 í hálfleik. GróttaKr kom grimmari til seinni hálfleiks, en stelpurnar okkar voru þó alltaf skrefinu á undan þar til í lokin er heimamenn komust einu yfir. Haukar náðu að jafna en GróttaKR náði aftur einu marki yfir og hélt því til loka.
Stelpurnar okkar virkuðu frekar þungar í sókninni og náðu ekki heldur að berja sig saman í vörninni. Nú er bara að bretta upp ermar og hrista sig saman fyrir næsta leik.
Athugið breyttan leiktíma hjá stelpunum útá nesi. Leikurinn átti að vera á laugardaginn en honum hefur verið flýtt fram á föstudag og hefst dýrðin kl. 20:00.
Allir að mæta!