1. deild karla. Fjölnisvöllur 06. júní 2005.
Lið Hauka
Krókódíllinn –
Pétur, Svavar S, Daníel, Geoff Miles –
Hilmar Geir, Kristján Ómar, Hilmar Trausti, Birgir Rafn (Betim 14) –
Hilmar Rafn (Ómar Karl 83), Rodney Perry (Arnar Steinn 86).
Þar sem Óli Jón er tognaður aftan í læri kom Pétur Örn inn í liðið og Daníel hélt fyrirliðabandinu. Svavar færði sig úr hægri bakverðinum og inn í stöðu hafsents.
Eins og í öðrum leikjum Hauka þetta sumarið hófst þessi leikur fjörlega og strax á 6.mín. var Hilmar Rafn Emilsson búinn að skora eftir sendingu frá Kristjáni Ómari. En heimamenn í Fjölni voru ekki lengi að svara fyrir sig því strax í næstu sókn á eftir jafnaði Pétur Georg Markan er hann náði að stinga sér fram fyrir varnarmann Hauka og skora með glæsilegu skoti. Á 14.mín þurfti svo Leðurdvergurinn Birgir Rafn að yfirgefa völlinn eftir að hafa fengið slæmt spark, en inn í hans stað kom Betim Haxhiajdini.
Pétur Georg var svo aftur á ferðinni á 22. mín er hann náði að koma heimamönnum yfir eftir misskilning varnarmanna Hauka.
En á 36.mín. tók Betim hornspyrnu sem hann hafði sjálfur unnið, boltinn barst til fyrirliðans Daníels Einarssonar sem skoraði með föstu skoti er markmaður Fjölnis náði ekki að verja. Hálfleikstölur því 2-2.
Í seinni hálfleik tóku Hauka strákarnir öll völd á vellinum og voru komnir með yfirhöndina á 66.mín. Þar var Hilmari Rafni aftur að verki er hann átti skot upp í vinkilinn af ca. 20 metra færi, sannarlega glæsilegt mark.
Seinasta mark leiksins kom svo á 73.mín. leiksins er Haukar fengu aukaspyrnu vinstra megin við vítateigslínuna. Úr henni skaut Kristján Ómar lágum bolta að marki Fjölnismanna er hafnaði í netinu eftir að hafa haft viðkomu í einum varnarmanni Fjölnis. Lokatölur 2-4.
Eftir góðan sigurleik í gær er staða okkar Haukamanna nokkuð væn. Sjö stig eftir fjóra leiki er eitthvað sem við getum verið vel sátt við. Einnig er ánægjulegt að sjá hve Hilmari Rafni gengur vel að koma knettinum inn í mark andstæðingana, en guttinn sá er nú kominn með 4 mörk í jafn mörgum deildarleikjum í sumar og er hann þar markahæstur. Einnig er gaman að sjá hve fyrirliðabandið hefur haft góð áhrif á markaskorun Daníels, tvö mörk í tveim leikjum.
Mörk leiksins
Hilmar Rafn Emilsson 6 mín. (0-1)
Pétur Georg Markan 7 mín. (1-1)
Pétur Georg Markan 22 mín. (2-1)
Daníel Einarsson 36 mín. (2-2)
Hilmar Rafn Emilsson 66 mín. (2-3)
Kristján Ómar Björnsson 73 mín. (2-4)
Maður leiksins að þessu sinni er markahæsti maður 1.deildar, hinn 18 ára gamli Hilmar Rafn, eða Kardinálinn sem setti tvö mörk í þessum leik, það síðara svo sannarlega glæsilegt.