Gísli Þröstur semur við knattspyrnudeild Hauka

Knattspyrnudeild Hauka hefur samið við Gísla Þröst Kristjánsson og gerir hann tveggja ára samning við félagið.

Gísli sem er fæddur árið 2000 er að ganga upp úr 2. flokki í meistaraflokk en hann tók þátt í þremur leikjum með Haukum í Inkasso deildinni síðasta sumar og einum í Mjólkurbikarnum.

Knattspyrnudeild Hauka fagnar samningnum við Gísla og bindur miklar vonir við hann á komandi árum.

Gísli Þröstur og Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs karla.