Giljagaur kom annar

Næstur í röðinni er Giljagaur og það er Bryndís Hreinsdóttir sem smellti sér í búining hans.

Þess má geta að það er Gísli Freyr Svavarsson leikmaður meistaraflokks karla sem sér um grafíska vinnslu myndanna. Arnar Freyr Magnússon sá um ljósmyndun.

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
– Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.