Fyrsti heimaleikur sumarsins – Fjölmennum á Ásvelli á föstudag

Á myndinni eru uppaldir Haukastrákar sem nú skrifuðu undir samning. Neðri röð frá vinstir: Þórður Jón Jóhannesson, Haukur Björnsson, Daníel Snorri Guðlaugsson, Lárus Geir Árelíusson, Jóhann Ingi Guðmundsson, Árni Ásbjarnarson Efri röð frá vinstri: Luka Kostic þjálfari, Stefnir Stefánsson, Þórarinn Jónas Ásgeirsson, Arnar Aðalgeirsson, Sindri Jónsson, Darri Tryggvason, Þórhallur Dan Jóhannsson aðstoðarþjálfari og Jón Erlendsson formaður knattspyrnudeildar.

Á myndinni eru uppaldir Haukastrákar sem skrifuðu undir samning fyrr á þessu ári.

Fyrsti heimaleikur meistaraflokks karla í Haukum í sumar verður á föstudaginn þegar Grindvíkingar koma í heimsókn en leikurinn hefst kl. 19.15. Kveikt verður upp í grillinu klukkutíma fyrir leik og munu stuðningsmenn hittast í veislusal félagsins þar sem hægt verður að gæða sér á hamborgara á vægu verði.

Í fyrstu umferð beið hið unga og efnilega lið Hauka lægri hlut gegn Víking Ólafsvík, 1-0, á meðan Grindvíkingar töpuðu 1-3 á heimavelli gegn liði Fjarðarbyggðar. Leikurinn gegn Víkingum var frekar jafn en því miður vantaði herslumuninn hjá okkar strákum.

Ljóst er að bæði lið vilja svo sannarlega krækja í sín fyrstu stig í deildinni í sumar þannig að búast má við hörkuleik á Ásvöllum og hvetjum við Hauka-fólk til að mæta á völlinn og hvetja okkar stráka til sigurs.

Áfram Haukar!