Forsala miða á uppskeruhátíðina þann 18. sept n.k. er hafin. Hægt er að kaupa miða hjá GP Húsgögnum Bæjarhrauni, Oddi Bakara Reykjavíkurvegi og í afgreiðslunni á Ásvöllum. Miðaverð í forsölu er kr. 2.800 kr. Innifalið er glæsilegur matseðill, hljómsveitin Hunang o.fl. Forsölu lýkur mánudaginn 13. sept. og hækkar þá miðaverð í kr. 3.000.
Mikill áhugi er á uppskeruhátíðinni og nær fullvíst að uppselt verður. Því er um að gera að nýta sér forsöluna sem fyrst.