Síðasta umferðin í riðlakeppninni í boðsmótinu fór fram fimmtugainn 27.maí síðastliðinn. Nokkuð var um óvænt úrslit og margar hörkuskákir voru háðar.
A-Riðill:
Skák kvöldsins í A-riðlinum var viðureign þeirra Sverris Arnar Björnssonar og Árna Þorvaldssonar. Þetta var hrein úrslitaskák um sæti í A-flokknum, þar sem Árni þurfti sigur til að tryggja sér sætið. Þeir lentu í æsilegu tímahraki, þar sem Sverrir vann betur úr stöðunni og sigraði. Guðmundur vann Halldór frekar örugglega og það sama gerði Sigurbjörn gegn Sverri Þ.
Úrslit:
Sverrir Örn- Árni: 1-0
Guðmundur-Halldór: 1-0
Sigurbjörn-Sverrir Þ.: 1-0
Lokastaðan:
Sigurbjörn 4,5
Sverrir Örn 4
Árni 2,5
Guðmundur 2,5
Sverrir þ. 1,5
Halldór 0
B-Riðill:
Óvæntustu úrslit kvöldsins litu dagsins ljós í B-riðlinum þetta kvöld, þegar formaðurinn Auðbergur sigraði Þorvarð í hörkuspennandi skák, þar sem Þorvarður virtist hafa betri stöðu, en Auðbergur sneri á hann. Stefán Freyr sigraði Gísla nokkuð auðveldlega og Ingi gerði slíkt hið sama gegn Ragnari.
Úrslit:
Auðbergur-Þorvarður: 1-0
Stefán F.-Gísli: 1-0
Ingi-Ragnar: 1-0
Lokastaðan:
Stefán Freyr 4,5
Þorvarður 3,5
Ingi 3
Auðbergur 2,5
Gísli 1
Ragnar 0,5
C-Riðill:
Aðeins fór ein skák fram í C-riðlinum, þar sem Gísli Pétur mætti ekki til leiks gegn Snorra. Páll hafði áður unnið Einar. Eina skákin var því á milli Daníels og Heimis, þar sem Heimir hafði frumkvæðið, vann peð og sigraði í endatafli.
Úrslit:
Daníel-Heimir: 0-1
Snorri-Gísli: 1-0
Lokastaðan:
Heimir 5
Daníel 3,5
Páll 3,5
Einar 1,5
Snorri 1,5
Gísli Pétur 0
D-Riðill:
Jóhann Helgi og Sveinn bættu met mótsins í að gera stutt jafntefli, en þeir sömdu eftir 6.leiki. Davíð sá aldrei til sólar gegn Jóni, sem tefldi mjög örugglega til sigurs. Stefán og Sigurður áttust við í skemmtilegri skák, þar sem Stefán var kominn með algjöra yfirburðarstöðu. Tap hjá Sigurði hefði þýtt að Jón hefði farið upp fyrir hann og það mátti glögglega sjá að Sigurður kærði sig ekki um það, þegar hann sneri gjörtapaðri stöðu í sigur í nokkrum leikjum. Þegar skákin var skoðuð á eftir, virtist þó sem Stefán hefði gefið of snemma.
Úrslit:
Jón-Davíð: 1-0
Jóhann-Sveinn: 0,5-0,5
Stefán-Sigurður: 0-1
Lokastaðan:
Jóhann 4
Sigurður 4
Jón 3,5
Stefán 2
Sveinn 1,5
Davíð 0
Riðlakeppninni er ekki alveg lokið enn, þar sem úrslitin réðust ekki í C-riðlinum. Páll og Daníel eigast við um sæti í A-flokknum, en Snorri og Einar um sæti í B-flokknum. Þessi einvígi verða tefld mánudagskvöldið 7.júní. Tefldar verða 2 atskákir, en ef þær duga ekki til að fá fram úrslit, verða tefldar hraðskákir.
Flokkakeppnin hefst svo daginn eftir, þriðjudaginn 8.júní. Dregið verður í töfluröð miðvikudaginn 2.júní og hún birt samdægurs.