Sæl aftur
Foreldrafundur verður fimmtudaginn 18. maí strax á eftir æfingu (18:30-19:30). Drengjunum er velkomið að mæta með foreldrum á fundinn. Farið verður yfir alla viðburði sumarsins og fyrirspurnum svarað. Óskað verður eftir því að gefin verði svör um það í hverju hver drengur mun taka þátt í sumar. Ef við fáum skýr svör um þátttakendur þá er líklegra að við getum skráð réttan fjölda liða og að við þurfum ekki að spila með marga varamenn. Ef við spilum með marga varamenn þá fær hver drengur að spila minna á hverju móti. Við viljum að sjálfsögðu að strákarnir fái að spila mikið af fótbolta:) Vinsamlegast mætið öll, það léttir á allri kynningu fyrir þá sem að þessu standa.
Kveðja Foreldrastjórnin