Í gærkvöldi tóku strákarnir okkar á móti Aftureldingu á Ásvöllum. Strákarnir spiluðu ekki sinn besta fyrri hálfleik og lentu í miklu vandræðum. Afturelding náði forustinni í stöðunni 10-11 og komust í 10-13. Okkar menn náðu aðeins að laga stöðuna fyrir hálfleik og staðan í hálfleik var 11-13.
Strákarnir okkar voru greinilega ekki tilbúnir að gefa Mosfellingum stigin tvö og sýndu skárri leik í síðari hálfleik heldur en í þeim fyrri. Strákarnir okkar komust fljótlega yfir að nýju og héldu þeirri forystu til leiksloka. Lokatölur 29-26.
Markahæstur í liði okkar manna var Arnar Jón Agnarsson með 7 mörk en Andri Stefan og Freyr Brynjarsson skoruðu 5 mörk hvor.
Hjá Aftureldingu var Daníel Jónsson markahæstu með 8 mörk en á tímabili var þetta eins og það væri ekkert mál fyrir hann að skjóta fram hjá Haukavörninni og markverði okkar. Haukur Sigurvinsson og Hilmar Stefánsson skoruðu 4 mörk hvor.
Með þessu náðu strákarnir fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar. Þeir eru með 21 stig eftir 13 leiki en HK, sem er í 2. sæti, er með 17 stig en á tvo leiki til góða.
Næsti leikur strákanna er gegn HK í Digranesi föstudaginn 14. desember.
Stelpurnar eiga hins vegar leik á þriðjudaginn gegn Stjörnunni í Mýrinni í Garðabæ.
Síðasti Haukaleikurinn fyrir jól er svo 15. desember þegar stelpurnar okkar taka á móti Akureyri á Ásvöllum.
Fjölmennum á þessa leiki og hvetjum okkar fólk til sigurs í þeim öllum.
ÁFRAM HAUKAR!!