Kæru foreldrar drengja í 6.flokki knattspyrnu hjá Haukum
Nú er komið að fyrstu fjáröflun til að standa straum af kostnaði við keppnisferðir vegna sumarsins 2006.
Þessi fyrsta fjáröflun mun verða sala á sjófrystum roðlausum og beinlausum ýsuflökum.
Um er að ræða sjófrystar blokkir sem eru ríflega 9kg og mun blokkin verða seld á 6000 kr. Af hverri seldri blokk munu ríflega 1700 kr. renna á reikning þess drengs sem hana selur.
Við vorum með sams konar fjáröflun síðastliðið sumar og heppnaðist hún vel hjá þeim sem lögðu sig fram.
Mesta sala eins drengs þá voru 9 blokkir og náði hann með því nánast að standa straum af kostnaði við þau mót sem farið var á sumarið 2005. Í því tilviki beitti móðirin þeirri stórgóðu sölutaktík að senda tölvupóst á vinnufélaga sína og gaf það líka svona góða raun.
Við mælum því með þessarri sölutaktík fyrir þá sem þess eiga kost, að sjálfsögðu í bland við aðrar aðferðir.
Það er ósk okkar sem störfum í foreldraráði flokksins að foreldrar og að sjálfsögðu drengirnir taki vel í þessa fjáröflunarleið og að sala megi verða góð.
Sölubókunum þarf að skila ekki síðar en mánudaginn 20. febrúar. Ath. hefur verið framlengt þar sem fjáröflunin hafði farið fram hjá einhverjum.
Pantanir skulu berast á netföngin
pallkr@marel.is eða
gretag@internet.is
Einnig er hægt að hringja í síma
825-8125 Páll K
660-2767 Gréta
696-9943 Stefán