Strákarnir okkar mættu fullir sjálfstrausts í Krikann í kvöld er þeir sóttu FH heim og unnu öruggan átta marka sigur 34-26. Þeir byrjuðu leikinn af krafti og sýndu mikla yfirburði frá fyrstu mínútu. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 6-12 og grunnurinn lagður. Í hálfleik höfðu strákarnir okkar skorað 20 mörk á móti 11 mörkum heimamanna. Haukar héldu uppteknum hætti í byrjun síðari hálfleiks og þegar um 10 mín. voru liðnar af honum var staðan 13-26. Lokatölur 26-34.
Sætur sigur og stigin tvö örugg frá upphafi leiks.