Faxaflóamót 4. flokks kk

Í dag spilað 4 fl.kk A og B lið við Selfoss.

Leikur A liðsins hófst kl.14.00 og byrjuð Selfoss strákar af miklum krafti.

Fljótlega fengu þeir vítaspyrnu sem Arnar Daði varð glæsilega. Síðan lá á Haukunum sem endaði með þremur mörkum Selfyssinga hálfleikslok. Gerðar voru smábreytingar á Haukaliðinu í hálfleik og mættu þeir mun einbeittari og ákveðnari í leikinn. Það skilaði sér í sex mörkum áður en leiknum lauk en Selfyssingar bættu við einu marki.

Leikurinn endaði því 6-4 fyrir Haukana.

Þeir sem skoruðu voru Alexander 1, Tommi 1, Siggi 1, Marteinn 1 og Ásbjörn 2.

Leikur B liðana byrjaði kl. 15.30 og lauk með sigri Selfyssinga 3-1. Selfoss byrjaði mun betur og var fljótlega komið í 2-0. Haukarnir komu meira inní leikinn þegar á leið og misnotuðu nokkur góð færi, áttu meðal annars stangarskot. Egill skoraði eina mark Haukana.

Faxaflóamót 4. flokks kk

Í dag voru spilaðir tveir leikir hjá 4 flokki kk A og B liða.

Í morgun kl. 9.30 áttu A lið Hauka og Álftaness að spila í Faxaflóamótinu en vegna miskilnings voru dómarar ekki boðaðir. Því var leiknum breytt í æfingaleik sem lauk með sigri Hauka 8-0. Leikurinn var einstefna Hauka að marki Álftaness og hefðu Haukastrákar auðveldlega getað bætt við fleiri mörkum. Þeir sem skoruðu voru Marteinn 1, Skúli 1, Þorgeir 1, Sveinbjörn 1, Ásbjörn 2 og Ásgrímur 2.

Kl. 16.00 í dag spiluðu B lið Hauka og FH. Var þetta leikur í Faxaflóamótinu og lauk honum með sigri FH 5-4. Haukarnir byrjuð mun betur og komust í 2-0. Var þá nánast einstefna að marki FH og voru Haukarnir klaufar að bæta ekki við mörkum. FH ingar fengu tvær stungusendingar innfyrir vörn Hauka þar sem þeir gáðu ekki að sér og jöfnuðu í 2-2.

Leikurinn jafnaðist nokkuð í seinni hálfleik og komust FH ingar meira inní leikinn. Haukar komust í 4-2 en leiknum lauk með sigri FH 5-4. Okkar strákar virkuð þreyttir í leikslok og gáfu svolítið eftir. Yfir heildina spiluð Haukarnir mjög vel og geta verið sáttir við leikinn þó svo að það hafi verið súrt að tapa þessum leik.

Þeir sem skoruðu fyrir Haukana voru Sigurður 2, Ásgrímur 1 og Hringur 1