Nokkrir ungir félagsmenn í Haukum tóku þátt í jólapakkamóti Hellis síðastliðinn sunnudag.
Hans Adolf Linnet stóð sig best allra haukamanna, en hann fékk 4 vinninga og endaði í 2 sæti í mótinu í yngsta flokki og fékk því veglegan jólapakka að launum.
Myndin (ef hún kemur) er af Val Ella Valsyni sem einnig keppti í yngsta flokk.
Að auki tóku þátt þau Agnes Linnet, Kristján Ari Sigurðarson, Herbert og Geir. Þeir Kiddi og Herbert voru reyndar stálheppnir og voru dregnir út þegar dregið var til aukaverðlauna og hlutu þeir þvi sinn hvor pakkann.