Evrópukeppni félagsliða í skák

ÞÁ Evrópukeppni taflfélaga lokið og við komnir heim.
Þetta var góð ferð í alla staði. Menn að standa sig vel. Sumir óheppnir og hefðu átt skilið meira.
Annars var árangur liðsins frábær. Liðið var það 47. sterkasta en við lentum í 43. sæti og náðum mjög góðum úrlslitum við sterkari andstæðinga. Einsog t.d. 3-3 jafntefli við sterka sveit HMC Calder frá Hollandi með 2 AM og 2 IM og með að meðaltali 150-200 stigum hærri en við. Góðir sigrar á Monte Carlo og Butrinti.
Einnig naum töp (2,5-3,5) fyrir sterkum sveitum Bronshoj Skakforening og Oslo Schakselskap.
Annars er einstaka úrslit manna eftirfarandi:
1. Davíð Kjartansson 1,5 af 7, tefldi mikið upp fyrir sig og stóð sig vel en var óheppinn á köflum.
2. Halldór B. Halldórsson 3 af 6, háði hetjulegar baráttur peði undir til að tryggja stig liðsins,
3. Heimir Ásgeirsson 2 af 7 var óheppinn og átti meira skilið,
4. Þorvarður Ólafsson 4 af 7, Varði að standa fyrir sínu að venju, var óheppinn að fá ekki altaf stigamenn,
5. Stefán Freyr Guðmundsson 5 af 7, stóð sig best Haukamanna og varð jafn 2 öðrum íslendingum með besta skor landans, það væri gaman að sjá hverju stefán gæti áorkað ef hann hefði meiri tíma til að stúdera og tefla :),
6. Sverrir Örn Björnsson 3,5 af 6, Sverrir náði góðum úrslitum og verður endatöflin með hrók á móti riddara lengi í minnum höfð, alla vega hjá sumum okkar :),
7. Auðbergur Magnússon 0,5 af 2, já kallinn með 25%, er það ekki bara fínt 🙂 var samt stolltur af því að ég var greinilega ekki lélegasti skákmaðurinn þarna 🙂 Stefán Freyr getur vottað um það.
En að lokum þá var þetta bara ´“fín“ ferð einsog Haddi myndi orða það. Það er vonandi að félagið geti haldið áfram á sömu braut og nái að senda sveit eða sveitir aftur á þessa keppni 🙂
Sjáumst um næstu helgi,
Kveðja,
Aui