Evró – Mikið liggur við

Þó strákarnir okkar hafi byrjað veturinn með stæl og unnið tvo titla, Reykjavíkur Open meistarar og Meistarar Meistaranna, þá hefst vertíðin af fullri alvöru um næstu helgi. Þá spila Haukar við belgíska liðið Sporting Neerpelt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og verða báðir leikirnir hér heima. Um er að ræða geysilega mikilvæga leiki, því ef strákunum okkar tekst vel til, þá tryggja þeir sér sæti í sjálfri Meistaradeildinni. Það verður ekki auðvelt að slá Neerpelt út, þeir eru með eitt af sterkustu liðum Belgíu og þó Belgar hafi ekki verið hátt skrifaðir í alþjóðlegum bolta, þá vitum við að enginn leikur er unnin fyrirfram og verkefni strákanna verður mjög erfitt. En til mikils er að vinna og strákarnir leggja sig alla fram um að klára dæmið svo þeir komist í keppni með þeim bestu.

Báðir leikirnir verða á Ásvöllum, sá fyrri á laugardaginn kl. 16:30 og sá síðari á sunnudaginn kl. 20:00. Verð aðgöngumiða er stillt í hóf og kostar aðeins 500 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir börn 6 til 14 ára. Að venju er frítt fyrir ellilífeyrirþega og öryrkja.

Haukamenn og aðrir handboltaunnendur er hvattir til að fjölmenna á Ásvelli, hvetja strákana og hjálpa þeim að tryggja hagstæð úrslit. Með góðum stuðningi er allt hægt. Mikið liggur við.

ÁFRAM HAUKAR