Nú rétt i þessu lauk síðari leik stelpnanna okkar við Pelplast á Ítalíu. Lokatölur 34-28 í 32 stiga hita í afspyrnulélegum leik.
Þrátt fyrir úrslitin eru stelpurnar okkar komnar áfram í næstu umferð í Evrópukeppninni og er það frábært hjá þeim og bíðum við spennt að sjá hverjir næstu mótherjar verða.