Strákarnir okkar unnu góðan sigur í fyrri leik sínum við H.C. Bercham í Lúxemborg. Lokatölur 34-25 fyrir Hauka.
Haukar voru lengi í gang og heimamenn höfðu yfirhöndina í byrjun, um miðjan fyrri hálfleik var staðan 7-4 fyrir Bercham. Fyrir lok hálfleiks náðu strákarnir okkar að jafna og hálfleikstölur voru 14-16 fyrir Hauka. Í síðari hálfleik náðu strákarnir okkar að hrista sig saman og juku forskotið jafnt og þétt og unnu leikinn með níu marka mun. Góður sigur og gott veganesti fyrir leikinn á morgun.
Markahæstir voru Andri Stefan með 10 mörk, Jón Karl með 8 og Árni Þór 7.