England-Island

Næstkomandi laugardag ætla strákarnir í 6 flokk að hittast, panta pizzu og horfa saman á landsleikinn. Það er mæting klukkan 13:00 á Ásvelli og verður létt upphitun fyrir Shellmótið í íþróttahúsinu fyrir leik. Við ætlum að æfa okkur í hulla hopp, sippi, hringjakasti, reiptogi, þrautabraut, limbo og körfuskotum. Strákarnir hafa titla að verja því að í fyrra unnum við limbóið og vítakeppnina (yngra ár) auk þess sem við unnum ljósmyndakeppni og fengum mann í Shellmótsliðið. Markmiðið í ár hlýtur því að vera að bæta þetta, alltaf gera betur en síðast!!

Það má því búast við miklu fjöri á laugardaginn. ÁFRAM ÍSLAND.

kv. Óli