DHL deildin fer af stað eftir hlé

Þá er Evrópumótinu lokið og að sjálfsögðu voru Haukar í Sviss.

Boltinn hér heima fer af stað á morgun og þá er heil umferð hjá stelpunum. Okkar stelpur eiga leik við HK í Digranesi kl. 19:15. Strákarnir eru síðan á miðvikudag og þar mæta okkar menn Fylki í Fylkishöll kl. 19:15.

Við hvetjum alla Hauka til að mæta og munum að hvert stig skiptir máli.

HK – Haukar mfl.kvenna þriðjudag kl. 19:15
Fylkir – Haukar mfl.karla, miðvikudag kl. 19:15

ÁFRAM HAUKAR