Carlos Magnús Rabelo skrifar undir þriggja ára samning

Carlos Magnús Rabelo skrifar undir þriggja ára samning.

Carlos Magnús Rabelo sem fæddur er árið 2001 bætist nú í stækkandi hóp ungra og efnilegra leikmanna Hauka sem gera samning við félagið en hann hefur nú skrifað undir samning sem gildir út tímabilið 2022.
Carlos hefur leikið stórt hlutverk í A deildar liði 2.flokks Hauka undanfarið og hefur verið í æfingarhópi meistaraflokks.
Búast má við því að hann láti enn meira að sér kveða á næstu misserum og er hann klárlega einn af framtíðarleikmönnum félagsins sem við óskum góðs gengis á komandi tímabilum.
Það er mikið gleðiefni fyrir alla Haukamenn að upprennandi leikmenn sýna félaginu tryggð og eru tilbúnir í að taka þátt í uppbyggingu til framtíðar.

Haukar binda miklar vonir til hans í framtíðinni.

Áfram Haukar

Carlos Magnús og Igor.
Ljósmynd: Hulda Margrét