15. mars klukkan 16:00 Ásvellir- Haukar – HK – FRÍTT INN
Á morgun, laugardag verður sannkallaður stórleikur á Ásvöllum, þegar HK, Handknattleiksfélag Kópavogs, mun etja kappi við okkar menn. Fyrir leikinn eru við á toppi deildarinnar með 32 stig en HK í 5.sæti með 26 stig, jafn mörg og Stjarnan en HK búnir að spila einum leik minna og með sigri geta þeir komist við hlið Framara í 2. & 3.sæti deildarinnar. En aftur á móti, sigri Haukar á morgun, mun næsta lið vera 6 stigum á eftir Haukum, sem er jú bara gott mál.
Eftir jafnteflis leikinn á Akureyri hafa komið þrír góðir sigrar hjá Haukum í röð, gegn Fram, Stjörnunni og UMFA, en Aron Kristjánsson þjálfari Hauka hefur samt verið óánægður með það að strákarnir séu ekki búnir að sigra með " stærra " mun.
Gengi HK hefur einnig verið gott í síðustu þremur leikjum, eða eftir jafnteflis leik gegn Akureyri, hafa þeir sigrað þrjá leiki í röð, gegn Íslandsmeisturum Vals, Eyjamönnum og Frömurum.
Þau fjögur stig sem í boði hafa verið í þeim leikjum sem þessi lið eru búin að mætast í ár hafa öll farið til okkar og því er engin ástæða til að leyfa HK að fá síðustu tvö stigin á morgun.
Leikurinn hefst eins og fyrr segir klukkan 16:00, á Ásvöllum, en BYR – Sparisjóður, aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar ætlar að bjóða ÖLLUM frítt á leikinn, og því er ekkert að vandbúnaði fyrir allt Haukafólk, alla Hafnfirðinga og allt áhugafólk um handbolta og íþróttir hér á landi að kíkja við í Hafnarfjörðinn að sjá góðan og spennandi handboltaleik.
Auk leiksins á morgun, verður þetta í boði :
- Forleikur 7.flokks, klukkan 14:45 !
- BYR – Sparisjóður, gefur tíu heppnum áhorfendum vinninga í hálfleik
- Boltaþrautir og andlitsmálning fyrir yngri kynslóðina
- Síðast en als ekki síst mun 8.flokkur hlaupa með leikmönnum inn á völlinn á morgun og vera fánaberar.
Sjáumst á morgun í góði skapi – ÁFRAM HAUKAR !
– Arnar Daði Arnarsson