Breyting á 8.flokki barna

Í vetur verður sá hátturinn hafður á að elsta árið í fyrrum 8.flokknum, þeas. elsti árgangurinn í leikskóla, æfir með 7.flokki sem gengur nú undir heitinu „Íþróttaskóli Hauka“. Sjá æfingatíma 7.flokks kvenna og 7.flokks karla hér á síðunni.

Árgangar 2003 og yngri fara í „Íþróttaleikskóla Hauka“ (áður Leikjaskóli barnanna) sem verður áfram á laugardagsmorgnum og verður auglýstur nánar innan skamms.

Skráning í bæði Íþróttaskólann og Íþróttaleikskólann fer fram á www.haukar.is undir „Skráning á íþróttanámskeið“