Boðsmót Hauka, 4. umferð.

4. umferð í boðsmóti Hauka fór fram17. og 24. ágúst.

A-flokkur:

Í A-flokki mættust Sigurður Sverrisson og Heimir Ásgeirsson. Sigurður náði snemma frumkvæði, sem hann hélt alla skákina og vann glæsilegan og óvæntan sigur. Jóhann Helgi og Sverrir Örn mættust í hörkuskák sem endaði með jafntefli. Ein besta skák mótsins til þessa var á milli Stefáns Freys og Páls, en þar var Páll kominn með frábæra stöðu, en Stefán sýndi snilld sýna, hélt sókninni áfram og náði að knýja fram sigur. Það væri gaman ef þessi skák yrði birt hér á síðunni, því allir aðdáendur skáklistarinnar hefðu gaman af því að skoða þessa frábæru skák. Þorvarður og Sigurbjörn eiga eftir að mætast í þessari umferð.

Staðan í A-Riðli:

1. Stefán Freyr Guðmundsson 3,5
2. Sigurbjörn Björnsson 3+fr.
3. Jóhann Helgi Sigurðsson 2
4. Heimir Ásgeirsson 2
5. Sigurður Sverrisson 2
6. Sverrir Örn Björnsson 1,5
7. Þorvarður Fannar Ólafsson 1+fr.
8. Páll Sigurðsson 0

Í B-flokki gerðu Árni og Daníel tilþrifalítið jafntefli. Stefán vann Inga frekar auðveldlega eftir að Ingi lék af sér manni. Vegna veikinda varð Einar að gefa skákina gegn Jóni án taflmnennsku. Guðmundur og Auðbergur áttust við í skemmtilegri skák, sem leit út fyrir að vera unnin á Guðmund, þegar Auðbergur fann réttu leiðina og tryggði sér sigur.

Staðan í B-Riðli:

1. Jón Magnússon 4
2. Daníel Pétursson 3
3. Árni Þorvaldsson 2,5
4. Ingi Tandri Traustason 2
5. Auðbergur Magnússon 2
6. Guðmundur G. Guðmundsson 1,5
7. Stefán Már Pétursson 1
8. Einar G.Einarsson 0

Davíð mætti til leiks í C-flokknum eftir frí í sumar og byrjaði nýtt tímabil glæsilega með því að vinna Baldur. Sveinn og Sverrir gerðu jafntefli, eftir að skákin hafði skipt nokkrum sinnum um eigendur.
Gísli “grísaði” á Halldór eftir mjög vafasama fórn, þar sem Halldór hefði þurft að vera nákvæmari.

Staðan í C-flokki:

1. Sverrir Þorgeirsson 3,5
2. Sveinn Arnarson 3
3. Gísli Hrafnkelsson 2,5+fr.
4. Snorri Karlsson 2
5. Davíð Bragason 1+2 fr.
6. Ragnar Árnason 1+fr.
7. Baldur Snæhólm 1
8. Halldór G. Haraldsson 0