Birkir Ívar í atvinnumennskuna

Okkar frábæri markmaður, Birkir Ívar hefur gengið frá 2ja ára samningi við þýska liðið Tus-N-Lübbecke. Bikir Ívar yfirgefur herbúðir Hauka í vor og heldur á vit ævintýranna og mun spila í Bundesligunn næsta vetur.

Haukar munu kveðja Birki Ívar með miklum söknuði en jafnframt óskum við honum góðs gengis í atvinnumenskunni. Þetta er frábært tækifæri fyrir Birki Ívar og erum afar stolt af okkar manni.