Nú styttist í 8-liða úrslit SS bikarins og verða tveir stórleikir á Ásvöllum í vikunni.
Á miðvikudag eru það snillingarnir okkar í Haukar 2 sem fá HK í heimsókn og er óhætt að að lofa hörkuleik. Þessir öldnu höfðingjar hafa engu gleymt og eru hoknir af reynslu. Þeir leggja ekki í vana sinn að tapa leikjum og spurning hvort gestirnir frá Kópavogi eigi eitthvert erindi í klærnar á okkar mönnum.
Á fimmudag er síðan stórleikur Hauka við ÍR. Hér er líka hægt að lofa hörkuleik þar sem tvö af toppliðum landsins mætast. Leikir þessara liða hafa á undanförnum árum verið stórskemmtilegir. Þetta verður erfiður leikur og þrátt fyrir stíft prógram síðustu vikur hjá strákunum okkar ætla þeir sér ekkert annað en sigur og við áhorfendur fjölmennum og hjálpum þeim að komast í Höllina.
Miðvikudagur 24. nóv. kl. 20:00 Haukar 2 HK
Fimmudagur 25. nóv. kl. 20:00 Haukar – ÍR
ÁFRAM HAUKAR