Hér eru nokkrir punktar varðandi bikarúrslitaleikinn á laugardaginn.
HAUKAR – GRÓTTA
SS – BIKAR KVENNA
LAUGARDALSHÖLL
LAUGARDAGINN 10. MARS
KLUKKAN 13:30
DAGSKRÁ Á ÁSVÖLLUM FRÁ KL. 10:30
RÚTUFERÐIR FRÁ ÁSVÖLLUM KL. 12:30
-
Haukar hafa átt lið í úrslitum karla og/eða kvenna í 5 skipti á síðustu 6 árum. Þetta eru 6 lið í úrslitum.
-
Grótta hefur átt lið í úrslitum karla og/eða kvenna í 2 skipti á síðustu 6 árum. Þetta eru 2 lið í úrslitum. Bæði skiptin sem Grótta/KR
-
Haukar og Grótta hafa í vetur mæst tvisvar sinnum í kvennaflokki. Í fyrri leiknum sigraði Grótta, 27-22, og síðari leiknum lauk með jafntefli, 19-19.
-
Haukar eru í 4. sæti með 21 stig í DHL deildinni, Grótta er í 3. sæti með 24 stig.
-
Haukastelpur hafa orðið bikarmeistarar þrisvar sinnum, 1997, 2003, 2006.
-
Gróttustelpur hafa aldrei orðið bikarmeistarar.
-
Haukastelpur hafa sex sinnum leikið í bikarúrslitum, 1997, 1999, 2001, 2003, 2004 og 2006.
-
Gróttustelpur hafa tvisvar leikið í bikarúrslitum, 2002 og 2005.
-
Haukar og Grótta hafa aldrei mæst í bikarúrslitaleik.
-
Haukastelpur hafa þrisvar tapað bikarúrslitaleik. Vinningshlutfall í bikarúrslitaleikjum er því 3 sigrar gegn 3 töpum. 50% sigurhlutfall.
-
Gróttustelpur hafa tvisvar tapað bikarúrslitaleik. Vinningshlutfall í bikarúrslitaleikjum er því 0 sigrar gegn 2 töpum. 0% sigurhlutfall.
Það verður spennandi að sjá hvaða lið sigrar á laugardaginn. Til að stelpurnar okkar geti sigrað verðum við að fjölmenna á völlinn enda skipti 8. leikmaðurinn miklu máli!!