Barnaæfing 23. nóvember

Á æfingunni var síðasti undirbúningur undir íslandsmót unglingasveita og var farið í liðakeppni.

Þarna mættust 2 lið þe. liðið Snillingarnir og síðan harðskeytt lið FH sem virðast vera nokkrir innan skákdeildarinnar. Lið FH sem fór ekki vel út úr síðustu liðakeppni gegn Chelsea ákvað að við svo búið mátti ekki standa og hreinlega ruslaði upp andstæðingunum.

Hér koma einstök úrslit.

Snillingarnir – FH.
Birgir – Davíð 0-2
Hans Adolf – Steindór 2-0
Guðrún – Styrmir 2-0
Heiðdís – Andrea 1-1
Jón Guðnason – Jósef 1-1
Árni Freyr – Emil 0-2
Valur – Agnes 0-2
Gísli Freyr – Ísak 0-2
Starri – Jón Hákon 0-2
Hákon – Guðjón 0-2
Hildur – Birgitta 1-1
Ingeborg – Signý 0-1
Thelma – Signý 0-1

Samtals sigruðu því FH snillingana með 17 vinningum gegn 7 en þeir hreinsuðu neðri borðin.