Eins og allir sannir Haukamenn vita þá stendur mikið til hjá okkur næstu vikurnar í Meistardeildinni.
Nú er unnið hörðum höndum í að undirbúa ferð til Barcelona. Eftir að hafa skoðað ýmis misgóð tilboð var ákveðið af stjórn Hauka í Horni að setja saman ferðanefnd til að skipuleggja „Hópferð að hætti Hauka“. Í nefndinni eru Þorgeir Haraldsson 822-6146, Guðborg Halldórsdóttir 895-5596, Helgi Ásgeir Harðarson 822-5571 og Björg Guðmundsdóttir. Þessir aðilar eru núna í þessum lesnu orðum að leita EINFALDRA og BEINNA leiða niður til Barcelona helgina 20. til 23. nóvember. Þó ekki sé endanlega ákveðið með dagsetningar er stefnt að því að ferðaplanið verði sem einfaldast og að við náum saman þremur nóttum að hætti Hauka í Barcelona.
Nánari upplýsingar verða settar hér inná síðuna um leið og eitthvað er að frétta. Við hvetjum alla FerðaHauka til að fylgjast með.
P.S.
Þeir sem hafa áhuga á Barcelonaferð, endilega látið heyra í ykkur.